5. vikna byrjendanámskeið
í prjóni - á netinu
5. vikna byrjendanámskeið
í prjóni - á netinu
Verð
Lengd námskeiðs
€67
5 vikur
Kennari
Tinna Laufdal Guðlaugsdóttir
Lærðu að prjóna í skemmtilegu 5. vikna námskeiði fyrir byrjendur hjá Tinnu Lind stofnanda Tiny Viking. Hún er menntaður textíl kennari og fatahönnuður. Hefur prjónað frá því að hún var ung og hefur margra ára reynslu af textíl kennslu.
Um námskeiðið
Lærðu að prjóna húfu og peysu á þínum hraða og þegar passar þér. Þú færð skýra og góða kennslu frá textíl kennara og fatahönnuði Tinnu Lind. Við prjónum saman alveg frá því að fitja upp til fullkláraðs stykkis. 40+ myndskeið sem þú spilar og stöðvar að vild. Við hittumst svo 1x í viku live á Zoom, förum yfir hvar við erum stödd og fáum nýjar upplýsingar. Þess í milli tölum við saman í lokuðum hóp á Facebook þar sem þú getur fengið enn meiri aðstoð og hvatningu svo þú sitjir aldrei föst/fastur. Ath að það er heimavinna líka. Í lok námskeiðs verður þú búin/n að prjóna húfu og peysu á þig eða þína, jafnvel í gjöf, sem þú sjálf/ur prjónaðir! Fullkomið fyrir köldu dagana. Lærum saman!
Þú lærir hvar og hvenær sem passar þér best
40+ stutt myndskeið með skýrum leiðbeiningum. Horfir á þau í gegnum netið
Aðgengi að lokuðum Facebook hóp þar sem þú færð hjálp og hvatningu frá kennara og samnemendum
Þú lærir með hjálp textíl kennara
Hvað nemendur segja um námskeiðið
Ég hefði aldrei þorað að byrja prjóna ef ekki hefði verið fyrir þetta snilldar nàmskeið og núna stuttu seinna er ég að verða búin með mína fyrstu húfu! þetta nàmskeið býður uppá allt sem þú þarft til þess að byrja og ekki skemmir fyrir að fá að hittast LIVE og geta spurt og spjallað Mæli 110% með þessu
- Katrín
Ég hafði aldrei prjónað lykkju fyrr en ég ákvað að skrá mig á prjónanámskeiðið hjá Tiny Viking. Ég var fljót að ná tökum á prjónunum með hjálp kennslumyndbanda með mjög nákvæmum leiðbeiningum sem kenndu mér allt sem kunna þarf. Mjög auðvelt var að fylgja áætluninni á mínum eigin hraða og tókst mér að klára mína fyrstu húfu og peysu á meðan á námskeiðinu stóð. Mjög skemmtilegt og lærdómsríkt námskeið í frábærum félagsskap þar sem hvatningin er mikil.
- Jóhanna
Virkilega skemmtilegt prjóna námskeið og vel sett upp. Átti ekki í vandræðum með að komast í gegnum verkefnin með hjálp Tinnu. Kennsluvideoin eru vel skipulögð og auðvelt að fylgja þeim eftir. Elska líka vikulegu net hittingina á zoom og það hvetur mann áfram að sjá verkefni frá öðrum nemendum. Mæli hiklaust með þessu námskeiði ef þig hefur alltaf dreymt um að læra að prjóna.